Á Þjóðhátíðardaginn hélt Skotfélagið Markviss Makviss open, Landsmót STÍ í BR .22LR Hunter Class. 8 keppendur úr 3 skotfélögum mættu til leiks, en allhvass NA-A vindur lék margan keppendan grátt, en að lokum stóð Jón Ingi Kristjánsson SK uppi sem sigurvegari. Að okkar bestu vissu var í fyrsta sinn keppt í liðakeppni í .22LR BR á íslenskri grund og sigraði sveit SK (Jón I. Magnús og Guðni) sameiginlega sveit SSS og MAV. Nánar á úrslitasíðu STÍ