Fámennt en góðmennt var á Landsmóti STÍ á Blönduósi, 8 keppendur frá 3 skotfélögum. Blíðskapaveður var þó lognið hafi stundum flýtt sér aðeins of mikið. 2 keppendur skutu sig upp um flokk á mótinu, Svanur Rafnsson (MAV) skaut sig upp í 3ja flokk með 83 dúfum og Snjólaug M Jónsdóttir (MAV) skaut sig upp í Meistaraflokk með 98 dúfum. Úrslitin urðu þau að lið Markviss (Guðmann, Svanur og Snjólaug) endaði með 284 dúfur og höfðu betur gegn liði SFS sem endaði með 280 dúfur. Jakob Þór Leifsson (SFS) var sigurvegari mótsins á 113 dúfum, Guðmann Jónasson (MAV) í öðru sæti á 103 dúfum og Hákon Þ Svavarsson (SFS) í þriðja sæti á 100 dúfum. Nánar á úrslitasíðunni.
Jakob sigraði á Blönduósi
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-06-07T16:27:23+00:00June 7th, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Jakob sigraði á Blönduósi