Dagana 23-25 maí 2026 hélt Skotfélagið Markviss Landsmót í riffilgreininni BR 50 í sporter, léttum og þungum riffli samkvæmt reglum WRABF. Skráning var í höndum Markviss. Mótsstjórn Jón B. Kristjánss. Yfirdómari Guðmann Jónasson Kviðdómur: Jón Ingi Kristjánsson Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir Tímavarsla og skotstjórn skiptist á keppendur. Alls voru 9 keppendur skráðir, 8 í sporter flokki og 9 í léttum og þungum riffli 2 riðlar voru í sporter og 3 í þyngri flokkunum, Mæting keppenda var kl. 09.00 í viktun og búnaðarskoðun alla keppnis-dagana. Mótið var sett með stuttri tölu mótstjóra fyrsta keppnisdaginn, og keppni hófst alla dagana kl. 10.00 samkvæmt settu tímaplani, og stóðst það og keppni lauk á réttum tíma alla keppnisdagana. Veður og aðstæður voru með ágætum nema helst á sunnudag í léttum riffil þar sem strekkingsvindur lék suma keppndur grátt.
Eitt Íslandsmet var sett í mótinu Samúel Ingi Jónsson MAV bætti eigið met í sporter flokki unglinga 713 stig 18 X. Nánari úrslit eru í pdf. viðhengjum ásamt keppenda og búnaðarlista. Móti slitið kl. 15.00 25.05.26 eftir stutta athöfn þar sem verðlaun móts voru afhennt. Vert er að taka fram að þetta er að okkar bestu vissu fyrsta sinn sem haldið er fullt BR 50 mót á 3 dögum hérlendis og eins í fyrsta sinn sem er keppt formlega í “3 Gun” samkvæmt WRABF reglum og væri til eftirbreytni að þetta væri tekið upp víðar og STÍ staðfesti og skráði met í þessari keppnisgrein. Markviss þakkar keppendum drengilega keppni og íþróttamannslega framkomu, eins starfsfólki fyrir þess framlag. Nánar á úrslitasíðu STÍ
Frétt frá fh. MAV, Jón B. Kristjánsson