Skotíþróttasamband Íslands hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn ársins 2019 :

Skotíþróttakarl Ársins 2019 er: Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur

Ásgeir sigraði í öllum þeim mótum sem hann tók þátt í hérlendis og er ríkjandi Íslandsmeistari í Loftskammbyssu.

  • Hann varð Þýskalandsmeistari með liði sínu, SGi Ludwigsburg í Þýsku Bundesligunni í vor.
  • Hann sigraði á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í lok maí.
  • Á Heimsbikarmóti ISSF í Kína í lok apríl hafnaði hann í 35.sæti af 97 keppendum.
  • Á Heimsbikarmóti ISSF í Brasilíu í lok ágúst varð hann í 23.sæti af 87 keppendum.

Ásgeir er sem stendur í 56.sæti á Heimslistanum og í 39.sæti á Evrópulistanum.

Skotíþróttakona Ársins 2019 er: Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur

Jórunn sigraði á flestum þeim mótum sem hún tók þátt í hérlendis.

  • Hún varð Íslandsmeistari í Loftskammbyssu
  • Hún varð Íslandsmeistari í 50 metra liggjandi riffli
  • Hún varð Íslandsmeistari í Þrístöðuriffli
  • Hún hafnaði í 58.sæti á Evrópumeistaramótinu í Króatíu