Íslandsmótinu í riffilgreininni Bench Rest lauk á svæði Skotfélags Reykjavíkur í dag. Íslandsmeistari varð Finnur Steingrímsson úr Skotfélagi Akureyrar en hann skaut öllum sínum 50 skotum í tíuna eða alls 500 stig og eins var hann með 17 innri tíur. 500 stigum hefur enginn náð á síðustu 30 árum. Í öðru sæti varð Gylfi Sigurðsson úr Skotfélagi Húsavíkur með 498 stig og 28 innri tíur. Í þriðja sæti hafnaði Jóhannes Frank Jóhannesson úr Skotdeild Keflavíkur með 498 stig og 23 innri tíur. Nánar á úrslitasíðunni