Landsmót STÍ í loftskammbyssu fór fram í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 16. febrúar.

Í stúlknaflokki setti Sigríður Láretta Þorgilsdóttir Skotfélagi Akureyrar, glæsilegt nýtt Íslandsmet, 501 stig en Sigríður sigraði keppinaut sinn, Sóleyju Þórðardóttur sem einnig kom frá Akureyri. Skor Sóleyjar var 481 stig.
Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir, Skotfélagi Reykjavíkur, á 543 stigum. Þorbjörg Ólafsdóttir, Skotfélagi Akureyrar varð önnur á persónulegu meti, 532 stigum og Sigurveig Helga Jónsdóttir, Skotíþróttafélagi Kópavogs, varð í þriðja sæti á 500 stigum.
Einar Hjalti Gilbert, Skotdeild Keflavíkur, var eini keppandinn í piltaflokki. Skor Einars Hjalta var 440 stig.
Í karlaflokki hafði Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur, mikla yfirburði en hann sigraði auðveldlega á 581 stigum. Ívar Ragnarsson, Skotíþróttafélagi Kópavogs, varð annar með 550 stig og Þórður Ívarsson, Skotfélagi Akureyrar, varð þriðji á 547 stigum.
A sveit SR sigraði í liðakeppni karla með 1611 stig. Sveitin var skipuð Ásgeiri auk Guðmundar Helga Christensen og Jóni Árna Þórissyni. A sveit SA varð í öðru sæti með 1563 stig. Sveit Akureyringanna var skipuð Þórði, Izaari Arnari Þorsteinssyni og Finni Steingrímssyni. Þriðja sætið kom svo í hlut A sveitar SFK sem náði 1552 stigum. Sveit SFK var skipuð Ívari, Ólafi Egilssyni og Jóhanni A. Kristjánssyni. frétt frá mótshaldara