Landsmót STÍ í loftriffli fór fram í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 16. febrúar.
Einn keppandi mætti til leiks í stúlknaflokki, Viktoría Erla Barnarson og stóð hún sig frábærlega vel en skor hennar var 558,9 stig.
Það sama var uppi á teningnum í kvennaflokki en Íris Eva Einarsdóttir forfallaðist svo að Jórunn Harðardóttir var eini keppandinn þar. Skor Jórunnar var 589,7 stig.
Í karlaflokki hafði Guðmundur Helgi Christensen nokkra yfirburði en hann sigraði á 596,7 stigum. Breki Atlason, Skotíþróttafélagi Kópavogs náði öðru sætinu með 555,3 stigum og Robert v. Ryan varð þriðji með 547,1 stig. Skor A karlasveitar SR í mótinu var 1686,7 stig en sveitina skipuðu Þórir Kristinsson auk Guðmundar Helga og Róberts. Allir keppendur mótsins, nema Breki komu frá Skotfélagi Reykjavíkur. frétt frá mótshaldara