Landsmót í loftbyssugreinunum fór fram á Borgarnesi í dag. Í loftriffli unglinga bætti Magnús Guðjón Jensson úr Skotdeild Keflavíkur eigið Íslandsmet í unglingaflokki úr 513,4 stigum í 549,0 stig. Thomas Viderö úr Skotíþróttafélagi Kópavogs sigraði í loftskammbyssu karla með 552 stig. Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði í kvennaflokki í loftskammbyssu með 360 stig og í loftriffli með 402,5 stig. Í loftriffli karla sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur með 583,5 stig.
Landsmót í Loftbyssugreinunum í Borgarnesi í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2021-04-15T15:22:29+00:00November 11th, 2017|Uncategorized|Comments Off on Landsmót í Loftbyssugreinunum í Borgarnesi í dag