Á Opna Reykjavíkurmótinu, SR OPEN, var jafnframt haldið Bikarmót STÍ og varð Stefán G. Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Bikarmeistari 2017. Á mótinu sigraði Sigurður U. Hauksson úr Skotfélagi Reykjavíkur, annar varð Stefán G. Örlygsson og í þriðja sæti Hákon Þ.Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands. Í liðakepni sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur skipuð þeim Erni valdimarssyni, Sigurði U.Haukssyni og Gunnari Sigurðssyni. Í öðru sæti varð sveit Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar innaborðs Jakob Þ.Leifsson, Stefán Kristjánsson og Aðalstein Svavarsson. Á SR OPEN sigraði Sigurður U. Hauksson í A-flokki, annar varð Hákon Þ.Svavarsson og þriðji Stefán G. Örlygsson. Í B-flokki sigraði Dagný H. Hinriksdóttir, Helga Jóhannsdóttir varð önnur og Daníel L. Heiðarsson varð þriðji en hann er aðeins 15 ára gamall. Verðlaun veittur þau Niccolo Campriani, sem er þrefaldur gullverðlaunahafi á Ólympíuleikum og Petra Zublasing sem er einnig í fremstu röð í heiminum, heimsmeistari, Ólympíumethafi ásamt fjölda annarra titla. Þau verða svo með fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík kl. 12-13:30 mánudaginn 21.ágúst.
Stefán G. Örlygsson Bikarmeistari STÍ í skeet
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2017-08-31T10:10:08+00:00August 22nd, 2017|Uncategorized|Comments Off on Stefán G. Örlygsson Bikarmeistari STÍ í skeet