Thomas Viderö úr Skotíþróttafélagi Kópavogs sigraði í Frjálsri skammbyssu á Landsmóti Skotíþróttasambands Íslands sem haldið var í Kópavogi í dag, með 524 stig. Í öðru sæti hafnaði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 512 stig og í þriðja sæti varð Ingvar Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 464 stig. Í liðakeppninni sigraði sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,407 stig en sveitina skipuðu Thomas Viderö, Bára Einarsdóttir og Guðrún Hafberg. Í öðru sæti varð sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,250 stig skipuð Jórunni Harðardóttur, Jóni Árna Þórissyni og Þorsteini B. Bjarnarsyni.
Thomas sigraði í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2021-04-15T15:22:27+00:00January 13th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Thomas sigraði í dag