Alþjóðlegt kvennamót í haglabyssugreininni Ólympísku Skeet fer nú fram á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Skotnar eru 75 leirdúfur í dag, föstudag og svo 50 á morgun, laugardag, og svo eru úrslit í A og B flokki þar á eftir og hefjast þau kl.13:30 í B og kl. 14:30 í A-flokki. Þessi keppni hefur farið fram árlega, víðs vegar um Evrópu síðan 1988. Þetta er í 3ja skipti sem hún er haldin hérlendis.