Skotþing 2020 fer fram laugardaginn 17.október 2020, einsog áður hefur verið auglýst, í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst það kl.11:00. Dagskrá þingsins er samkvæmt lögum þess. Kjörbréf má senda á netfangið sti@sti.is. Verið er að kanna möguleika á að þingið verði haldið rafrænt á TEAMS vegna stöðu COVID-mála þessa dagana. Það skýrist innan skamms. Eintak af Kjörbréfi Skotþings er hérna en þau ættu að hafa borist öllum hérðassamböndum og íþróttabandalögum.STI Þing 2020 KJÖRBRÉF

UPPFÆRT: Þingið verður haldið rafrænt á TEAMS. Aðildarfélög þurfa að senda Kjörbréfið, sem viðkomandi héraðssamband útbýr og undirritar, fyrir kl.11:00 laugardaginn 17.október eða fyrr á netfangið sti@sti.is  Aðgangur verður þá sendur á formenn viðkomandi aðildarfélags sem ráðstafar því á uppgefna fulltrúa samkvæmt kjörbréfi.