Þá er Íslandsmeistaramóti í grúppum 2024 lokið og uppi stendur Kristbjörn Tryggvason úr SA sem sigurvegari í samanlögðu.
Gylfi Sigurðsson úr SKH varð annar og Finnur Steingrímsson SA þriðji. Mótið var fámennt en það mættu 5 Norðlendingar og eiga þeir þakkir skyldar. Veður var með ágætum, þurrt, breytilegur vindur en ekkert alltof hlýtt en það er nú hægt að klæða af sér. Nánar á úrslitasíðu STÍ