Um helgina var Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Compak Sporting haldið á Akureyri. Veðrið lék við keppendur og var keppnin jöfn og spennandi allt til enda. En Íslandsmeistari karla er Jóhann Ævarsson úr SA með 196 stig. Bráðabana þurfti um annað sætið, þar sem Jón Valgeirsson úr SR (190) vann Ævar Svein Sveinsson úr SÍH (190) 23-21. Í kvennaflokki sigraði Snjólaug María Jónsdóttir úr MAV með 163 stig og Dagný Hinriksdóttir úr SR hlaut silfrið með 162 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.