Vegna árekstra við bæði HM og EM hefur Íslandsmótið í Skeet verið flutt á velli Skotíþróttafélags Suðurlands dagana 25.-27.ágúst 2023. Dagskrá HM breyttist nýlega og kom þá í ljós að keppni í Skeet rakst á fyrirhugað Íslandsmót. Mótið átti að fara fram hjá Skotfélagi Akureyrar um miðjan ágúst en félagið treysti sér ekki til að halda mótið ofangreinda helgi. Íslandsmótið 2024 verður því haldið á Akureyri.
Íslandsmótið í Skeet verður í Þorlákshöfn
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2023-07-15T10:12:42+00:00July 15th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Skeet verður í Þorlákshöfn