Landsmót STÍ í Loftskammbyssu fór fram í Kópavogi í dag.
Í fyrsta sæti með 221.3 stig var Adam Ingi Hoeby Franksson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs, í öðru sæti var svo Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr Skotfélagi Snæfellsnes með 218 stig, og í þriðja sæti var svo Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 198.3 stig.
Þar á eftir komu Maria Lagou, Bjarki Sigfússon, Laura Sofia Valero Vargas öll úr SFK.
Í liðakeppninni var A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs í fyrsta sæti, í öðru sæti var A-lið Skotdeild Keflavíkur og í því þriðja B-lið Skotíþróttafélags Kópavogs. Auk þessara kappa tóku fjölmargir keppendur þátt í sínu fyrsta móti, og því er framtíðin björt í þessari grein. Nánar úrslitasíðu STÍ.