Námskeið haglagreinar.
Fyrirlestur og vinnustofa.
Laugardaginn 18. Apríl næstkomandi verður haldinn fyrirlestur og vinnustofa um haglagreinar skotíþrótta innan skotíþróttafélaga. Námskeiðið er fyrir þjálfara, félög sem eru með starf eða eru að byggja upp starf í haglagreinum og svo íþróttamenn sem eru í afrekmótun eða afreksstarfi hjá aðildarfélögunum Verkefnið er liður í uppbyggingu skotíþrótta innan aðildarfélaga STÍ og á síðasta ári var haldið sambærilegt námskeið í riffilgreinum með góðum árangri. Öllum aðildarfélögum innan vébanda STÍ er boðin þáttaka og skulu skráningar sendar á sti@sti.is. Athugið að skráningar berast í gegnum aðildarfélög. Þáttökugjald er kr. 5000.- á hvern skráðann einstakling. Ekki eru fjöldatakmörk á fulltrúa aðildarfélaga. Umsjónarmaður og fyrirlesari er Peeter Pakk og fer fyrirlestur fram á ensku. Námskeiðið er haldið í sal C í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 17:00. Boðið er upp á hádegisverð og kaffi með hléum meðan á námskeiði stendur.