Landsmót STÍ í riffilkeppninni 50m liggjandi (prone) fór fram á Ísafirði í dag. Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs sigraði með 626,4 stig, Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar varð í öðru sæti með 622,2 stig og Leifur Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar tók bronsið með 612,2 stig. Í unglingaflokki sigraði Karen Rós Valsdóttir með 550,2 stig og Þórunn Erla Harðardóttir varð önnur með 509,5 stig. Þær keppa báðar fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðar.
Nánar á úrslitasíðunni, https://sti.is/2025-2026/