Jón Þór Sigurðsson var að vinna bronsverðlaun á Heimsmeistaramótinu í riffilskotfimi í Kaíró, Egyptalandi. Úrslitakeppnin var gríðarlega spennandi sem sjá má af því að fimm efstu voru allir með 597 stig en miðjutíurnar réðu úrslitum. Sigurvegarinn, Petr Nymbursky frá Tékklandi var með 40 xtíur, Max Ohlenburger frá Þýskalandi með 38 xtíur og svo Jón Þór með 36 xtíur. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um skorið á síðu keppninnar hérna. Þess má einnig geta að Jón Þór varð Evrópumeistari í þessari grein fyrr á árinu.

Mynd: Valur Richter/STÍ