Skotþing 2025 var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Þingskjölin eru hérna. Mættir voru fulltrúar aðildarfélaga STÍ eða 33 fulltrúar frá 9 félögum. Þingforseti var Jón S. Ólason fyrrverandi formaður STÍ. Venjuleg aðalfundarstörf voru á dagskrá og var ný stjórn kjörin en hana skipa Halldór Axelsson formaður, Jórunn Harðardóttir varaformaður, Guðmundur Kr. Gíslason gjaldkeri, Magnús Ragnarsson ritari og Ómar Ö. Jónsson meðstjórnandi. Varamenn eru Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir og Valur Richter, sem kemur nýr inní stjórn en Sigurður I. Jónsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði þingið.