Umsóknir opnar fyrir námskeið í Ólympíu í sumar

Búið er að opna fyrir umsóknir um þátttöku á tveggja vikna námskeiði í Ólympíu í Grikklandi sem haldið verður í sumar. Umsókn er opin einstaklingum sem hafa náð góðum árangri í íþróttum eða starfað innan íþróttahreyfingarinnar, t.d. sem kennarar, þjálfarar eða í félagsstörfum, auk þess að sýna áhuga á málefnum Ólympíuhreyfingarinnar.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auglýsir eftir tveimur þátttakendum á aldrinum 20–30 ára til að vera fulltrúar ÍSÍ á námskeiðinu, sem fer fram dagana 7.–19. júní 2025 bæði í Aþenu og Ólympíu. Þema námskeiðsins í ár er „Framtíð Íþrótta“ með sérstakri áherslu á tengsl Ólympíuhreyfingarinnar og gervigreindar: tækifæri og ógnanir.

Fræðslan fer fram í formi fyrirlestra, hópavinnu, fræðsluferða og íþróttaþátttöku. Þátttakendum verður allt að kostnaðarlausu – flug, gisting og fæði eru greidd af ÍSÍ og Ólympíuhreyfingunni.

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Gott vald á ensku og/eða frönsku.
  • Vera á aldrinum 20 – 30 ára
  • Vera góð fyrirmynd og sýna jákvætt viðhorf.

Umsóknarfrestur er til 16. mars 2025.
Skráning fer fram í gegnum þennan hlekk.

Tilvitnun í reynslusögu frá þátttakanda árið 2024:

„Tíminn í Grikklandi er ævintýri sem ég mun aldrei gleyma. Í fluginu til Aþenu hugsaði ég með mér, „Hvað er ég búinn að koma mér út í?“, með smá kvíðahnút í maganum. En um leið og við Melkorka löbbuðum út úr flugstöðinni, í sól og blíðu, breyttist kvíðinn í spenning.

Dagskráin hófst á þægilegan og fjölbreyttan hátt og samhliða kynntumst við hinum þátttakendum hægt og rólega. Sumir voru fyrrum ólympíufarar, aðrir sérfræðingar á sínu sviði, en margir voru að taka sín fyrstu skref á þessum vettvangi. Aðalatriðið var að hafa gott hugarfar, vera opin/n fyrir nýjum hlutum og njóta.

Það sem stendur upp úr frá ferðalaginu eru þær tengingar sem ég myndaði í Ólympíu. Ég er enn í reglulegum samskiptum við þá sem voru með mér úti – suma tala ég við daglega. Við styðjumst við í okkar verkefnum og skipuleggjum framtíðarferðalög sem hópur. Auk þess lærði ég mikið, bæði um Ólympíuhreyfinguna og sjálfan mig. Þetta var ótrúlega skemmtilegt!

Ég mæli hiklaust með því að sækja um ????“
– Sveinn Samsted, þátttakandi 2024

Hér má lesa meira um reynslusögur frá fyrra ári: Frétt á heimasíðu ÍSÍ.

Frekari upplýsingar má fá hjá:

  • Ragnhildi Skúladóttur, sviðsstjóra Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ (ragnhildur@isi.is).
  • Þórarni Alvari Þórarinssyni, sérfræðingi hjá Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ (alvar@isi.is).