Ólympíufarinn Hákon Þór Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands jafnaði í dag, á Íslandsmeistaramótinu á Akureyri, eigið Íslandsmet í haglabyssugreininni Skeet, 122 stig af 125 mögulegum. Skotserían var glæsileg, 25-24-24-24-25.
Í úrslitunum í karlaflokki varð Hákon svo Íslandsmeistari með 50/122 stig, í öðru sæti varð Arnór Logi Uzureau úr SÍH með 49/115 stig og í þriðja sæti Jakob Þór Leifsson úr SFS með 40/112 stig.
Í kvennaflokki varð María Rós Arnfinnsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari með 44/99 stig, Helga Jóhannsdóttir úr SÍH varð önnur með 36/90 stig og í þriðja sæti Dagný Huld Hinriksdóttir úr SR með 29/87 stig.
Emil Ísak Jónsson úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar var Íslandsmeistari í unglingaflokki.
Nánari úrslit koma svo á úrslitasíðu STÍ