Hákon Þór Svavarsson er nú staddur í Almaty í Kazakhstan þar sem fram fer Heimsbikarmót ISSF í haglabyssu. Hann keppir í greininni Ólympísku Skeet. Í dag eru skotnar 75 skífur og á morgun 50 skífur og svo úrslitin í beinu framhaldi. Við birtum hér framgang mála og uppfærum fréttina. Dagur 1 skor 23-22-22 alls 67 skífur. Seinni dagur 21-24 eða alls 112 stig. Hægt að fylgjast með skorinu hérna.

Finalinn í karlaflokki hefst kl.10:30:00 að íslenskum tíma á morgun þriðjudag og er hér í beinni útsendingu.

Eins má fylgjast með úrslitunum í kvennaflokki kl.09:00 í beinni útsendingu hérna.