Íslenska liðið náði silfurverðlaunum á Norðurlandameistaramótinu í Finnlandi í dag í haglabyssugreininni Skeet. Liðið skipa þeir Hákon Þ. Svavarsson, sem í gær varð fyrsti Íslendingurinn til að hampa Norðurlandameistaratitli í skotfimi í einstaklingskeppninni í Skeet, Stefán Gísli Örlygsson, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni, og Jakob Þór Leifsson.