Guðmundur Helgi Christensen úr SR varð í dag Íslandsmeistari í riffilgreininni 50 metra Þrístaða, en hún er ein af þeim skotgreinum sem eru keppnisgreinar á Ólympíuleikum. Hann endaði með 525 stig. Í öðru sæti varð Þórir Kristinsson úr SR með 513 stig og Valur Richter úr SÍ þriðji með 510 stig. Jórunn Harðardóttir úr SR varð Íslandsmeistari í kvennaflokki með 530 stig og Guðrún Hafberg hlaut silfrið með 407 stig. Viktoría Erla Bjarnarson hlaut Íslandsmeistaratitilinn í stúlknaflokki með 434 stig. Sveit Skotfélags Reykjavíkur sigraði með 1,501 stig og sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar varð önnur með 1,414 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ og heimasíðu mótshaldara.
Íslandsmót í Þrístöðu með riffli í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2022-04-24T13:53:45+00:00April 24th, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Þrístöðu með riffli í dag