Landsmót STÍ í 50m Riffli fór fram í Kópavogi laugardaginn 8.febrúar. Í karlaflokki jafnaði Jón Þór Sigurðsson úr SFK eigið Íslandsmet með 623,7 stig. Í öðru sæti varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 618,2 stig og Guðmundur Valdimarsson úr SÍ þriðji með 613,5 stig. Í liðakeppninni sigraði sveit SÍ með 1817,4 stig, sveit SFK önnur með 1811,7 stig og sveit SR þriðja með 1799,4 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 612,5 stig og Guðrún Hafberg úr SFK varð önnur með 591,1 stig.
Jón Þór jafnaði Íslandsmetið
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2020-02-12T21:19:13+00:00February 12th, 2020|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór jafnaði Íslandsmetið