Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams 14.08.2026 kl. 13:00

Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Jórunn Harðardóttir, Heiða Láta, Halldór Axelsson, Guðmundur Kr. Gíslason og Vali Richter

Dagskrá fundar:

  1. Áframhaldandi verkefni í riffilgreinum.
    1. Áframhald á verkefni með Anne Crete sem var í gangi í vor. Anne Grete er komin aftur inn í verkefnið eftir að hún þurfti að taka pásur frá því síðan í vor.
    2. Anne Grete lagði til tillögur fyrir STÍ með ákveðið verkefni um að byggja upp skotíþróttir í riffilgreinum, bæði í barna og unglingastarfi og svo einnig með fullorðnum. Þetta er langtíma verkefni með það að markmiði að byggja upp öfluga grasrót í riffillgreinum. Þær greinum sem hún leggur áherslu á eru loftriffill, þrístaða, 50m liggjandi og 300m riffill
    3. Lagt til að farið verði í samtal við aðildarfélögin og fá þau á borðið. Kanna áhuga þeirra til að taka þátt í verkefninu.
      1. Stefnt á að halda kynningu í haust fyrir aðildarfélög.
      2. Rætt um að byrja á þessu verkefni og nota reynsluna af þessu til að fara síðar í aðrar greinar, í stað þess að fara af stað með allar greinar.
    4. Stjórn samþykkir að fara í þetta verkefni og kalla til aðildarfélög með í það. Jórunn verður í forsvari fyrir þessu verkefni
  2. Mótahald og mótaskrá
    1. Jón Þór vann í gær á seinni móti Evrópumótaröð í 300m riffli.
    2. Mjög góður árangur í haglagreinum  á Norðurlandamótinu. Lentu í öðru sæti sem er mjög góður árangur. Arnór skaut 117, Jakob 115. Hákon skaut 110. Hákon hefur verið að glíma við meiðsli sem háði honum á mótinu.
    3. HM Doha í Katar 1. – 14. nóvember. Jón Þór og Valur Richter munu keppa í 50m liggjandi og Hákon, Arnór og Jakob í haglagreinum en þetta byggir á árangri síðasta árs. Þetta er lokamót ársins hjá ISSF.
    4. Rætt um nýja mótaskrá í samræmi við breytt keppnistímabil STÍ sem núna verður almanaksárið. HM hjá ISSF eru yfirleitt í lok árs eða Nóvember. Með núverandi fyrirkomulagi hefur verið notað við árangur síðasta árs fyrir þessi mót en þetta mun breyta því fyrirkomulagi.  Forskráningar fyrir ISSF mótin eru yfirleitt 3-4 mánuði fyrir mótin, svo eru hægt að skrá nær móti. Forskráning er mikilvæg uppá að tryggja sæti á mótin. Hægt er að tryggja sér RPO (Rankin Points Only) sæti á stærri mót t.d. í skeet.
      1. Mikilvægt að Íslandsmót rekist á stór alþjóðleg mót.
      2. Halldór leggur til að það verði bara 3 landsmót og 1 Íslandsmót í stað 4 landsmót og Íslandsmót. Aðsókn í haglagreinum hefur minnkað. Það væri þá meiri krafa á landsmót, eins og final og annað en væri hægt að setja minni kröfur á opnum innanlandsmótum, þar sem kröfur um final, fjölda daga á móti séu ekki eins stífar til að auðvelda mótahald. Komið hefur fram gagnrýni á framkvæmd Skeet móta, og þá gagnvart STÍ sem hefur yfirumsjón í grunninn og óskað eftir að STÍ komi sterkar inn.
        1. Rætt en ákveðið að breyta þessu ekki fyrir næstu mótaskrá í kúlugreinum en verði skoðað í haglagreinum.
      3. Með því að hafa mótin færri og hafa þau þá öflugri og reyna að draga fleiri á mótin.
      4. Mótaskrá verður mjög svipuð og hefur verið, nema Íslandsmót verði seinnipart árs, en rætt að breyta því ekki fyrir næsta tímabil.
      5. Umræður um hvort Íslandsmót eigi að vera á vori eða hausti. Skiptar skoðanir um það uppá æfingaáætlanir, og annað. Lagt til að fá álit hjá Anne Grete og ræða útfærslu nánar inna STÍ og mögulega hvort STÍ verði með aðlögunartímabil hvað þetta varðar.
      6. Lagt til að mótanefnd haldi áfram með vinnu eins og mótaskráin hefur verið og verður haldið áfram þannig. Ólíkleg er að tími sé til mikilla breytinga fyrir næsta keppnistímabil.
    5. Ákveðið var af NSR að halda annað Norðurlandamót í Svíþjóð á næsta ári, 2027. Þar er eingöngu keppt í fullorðinsflokki í haglabyssu, en unglinga og fullorðinsflokki í öðrum greinum.
  3. Önnur mál
    1. Vinna í gangi vegna Svíþjóðar þar sem Ísland telst ekki sem Norðurland hjá þeim og kostnaður mikill við að fara þangað. Hefur valdið Íslendingum vandræðum.
    2. Fatamál
      1. Lagt til að Magnús og Guðmann leggji fram tillögur að keppnisbúningum og leggjur fram á næsta fundi. Samþykkt.
    3. Keppnisréttur
      1. STÍ bárust upplýsingar um keppnisbann sem félag setti á félagsmann hjá félagsins vegna skoðana og gagnrýni á stjórn félags. Stjórn STÍ gerir alvarlegar athugasemdir við það að félagsmenn séu beittir viðurlögum vegna skoðana sem það setur fram, þar sem málfrelsi er á Íslandi. Málið verður skoðað frekar af hálfu STÍ en engin kæra hefur borist STÍ.