Stjórnarfundur STÍ haldin á Teams 26.08.2026 kl. 12:00

Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Halldór Axelsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Guðmundur Kr. Gíslason, Heiða Lára

Dagssrká fundar:

  1. Framtíðarstefna, umræður. Í framhaldi af verkefnum sem eru hafin er mikilvægt að STÍ setji sér stefnu og markmið til framtíðar þar sem að áherslur séu skilgreindar. Það eru margir þættir sem að eru frekar óljósir í okkar íþróttastarfi og er mikilvægt að okkar starf framundan sé samræmt og að við setjum okkur skýrari áherslur. 
    1. Halldór fór yfir það að það þarf að setja stefnu til framtíðar. Ekki neinar ákvarðanir strax heldur að hefja viðræður, hvaða greinar við eigum að sinna, hvert fjármagn fer og hvernig við eflum starfið. Þetta er upphaf á umræðum sem þarf að fara í. Það eru nokkur góð verkefni í gangi sem við höldum áfram en hvað getum við gert meira í uppbyggingu. Opið fyrir umræður
    2. Valur nefnir að það skiptir máli að efla þekkingu á greinum, þ.e. að efla fræðslu um reglur í þeirra greinum.
    3. Guðmundur fer yfir þau sambönd sem við erum aðilar að, eins og FITASC, WBSF, WRABF, NSR, ISSF en upphaflega var sambandið sem STÍ var í kring um var ISSF. Spurt hvort að leggja þurfi meiri áherslu á færri sambönd og gera það betur eða
    4. Magnús fer yfir áhyggjur af því að fjöldi sem er að skjóta hefur fækkað gríðarlega. Það þarf að efla grasrótina og fá fólk til að mæta á skotsvæðin og einfaldlega skjóta, hvað sem það er, hittast og byrja öflugt starf. STÍ þyrfti að aðstoða og hvetja aðildarfélögin til að fá fólk aftur til að mæta á skotsvæðið.
    5. Guðmundur fór yfir það að margir mæti í sporting, og þar er fjöldin en reynslan er að fólk sé ekki að skila sér yfir í Skeet. Það er því ekki víst að það skili sér yfir. Það er auðvelt að tolla í því, sama með Benchrest, það hefur ekki skilað sér yfir t.d. 50m riffills.
    6. Magnús nefnir að það væri hægt að búa til nýjar skotgreinar sem henta aðildarfélögunum hér heima. eins og t.d. 50m liggjandi riffill fyrir verksmiðjuriffla með sjónauka sem væri aðgengilegt öllum og væru byrjendagrein.
    7. Jórunn nefnir að það er lítið um að nýtt fólk sé að koma inn á æfingar til að byrja að æfa.
    8. Valur líst vel á hugmynd Magnúsar. Nefnir að það er orðið erfitt að fá sjálfboðaliða og eru fáir á svæðinum að æfa almennt.
    9. Jórunn nefnir hvað Skotkóp er að gera í lofgreinum og þar er verið að efla starfið og er algjörlega frábært að sjá. Þetta er strax farið að skila sér út í mót og líka í félagsstarfið hjá Skotkóp.
    10. Halldór nefnir að STÍ gæti farið í öfluga herferð í að kynna loftgreinar, og fara í alvöru vinnu við það.
    11. Heiða Lára nefnir að hún kom in í íþróttaskotfimi úr skemmtiskotfimi. Hún nefnir að það þarf að skoða hvernig er tekið á móti fólki sem kemur á skotsvæðin. Það eru dæmi um að fólk mæti og er afskiptalaust og það getur verið fráhrindandi.
    12. Halldór nefnir að þetta er oft tengt menningu skotfélaga eða sumra og þarf einmitt að efla þetta, að vera með mannskap sem tekur á móti fólki með jákvæðni.
    13. Þetta verður vinna næstu vikna að gera einhverja stefnu í þessu og í framhaldi að fá aðildarfélögin að koma að því að taka þátt í þessari stefnu.
  2. Önnur mál
    1. Ísland með brons á Landskamp í Danmörku í Nordisk Trap en Snjólaug komst í Úrslit og bætti einnig Íslandsmetið. Sjá nánar í frétt.
    2. Heimsmeistaramót í HC á vegum WBSF fer fram í Portúgal 06. – 12. september og fara fimm keppendur frá Íslandi á það mót. Þar keppa Davíð Bragi Gígja, Jón Ingi Kristjánsson, Guðni Sigurbjarnarson, Hólmgeir Jónsson og Magnús Sigurbjarnarson
    3. Jóhannes Frank  og Kristbjörn Tryggvason eru að keppa núna á Evrópumóti í Benchrest grúppum.
    4. Jón Þór er búinn að tryggja sér rétt inn á Evrópufinal í Lapua mótaröðinni 300m, sem er top 12 bestu.
    5. Það er heimsmeistaramót ISSF í Doha í öllum greinum í Nóvember en það er nokkuð óljóst útaf ástandi heimsmála.
    6. Valur spurði út í 300m Íslandsmótið, verður farið í að athuga það.
    7. Jórunn fór yfir stöðuna á Önnu Grete. Hún hefur sett upp þriggja ára verkefni að fjölda yngri iðkendum í félögunum. Þetta snýst um að fá yngsta fólkið inn og gera það skemmtilegt að skjóta. Þar er undir að aðildarfélögin vinni saman í því að ná þessu markmiði. Snýst um að fá foreldra, frændur og frænkur í þetta. Hún hefur mikla reynslu í að byggja upp félög til að efla innra starf og íþróttastarf almennt. Í þessum vinnuhópi með Jórunni er Þórir Kristins og Sigurður Ingi, ásamt Anne Grete. Hún vill ekki einskorða þetta við riffill heldur að byggja upp innra starf almennt. Þetta eru 3 helgar. Fyrsta helgin er 17. – 18. október. Það á eftir að senda út bréf á aðildarfélögin. Erfitt hefur reynst að finna helgar fyrir námskeiðið
    8. Jórunn fer yfir mótaskrá en hún er ennþá í vinnslu. Búið að finna tíma fyrir Íslandsmótið í lofgreinum. Jórunn sýnir drög að mótaskránni og ber undir stjórn.
    9. Ákveðið að næsti fundur stjórnar verður 11. september.

Ekki fleira gert á fundi og honum slitið kl. 13:10