Stjórnarfundur 9.5.2025
Mætt eru: Magnús Ragnarsson, Halldór Axelsson, Guðmundur Kr., Jórunn Harðardóttir, Ómar Örn Jónsson og Heiða Lára
Dagskrá:
- Heimasíða.
- Magnús fór fyrir stöðu heimasíðunnar og vinnu sem hann er að fara í með það að leiðarljósi að gera síðuna símavænni, uppfæra mótaskrá og setja meira af upplýsingum. Einnig fyrirhugað að fara í tilraunaverkefni með að birta styrkleikalista í nokkrum greinum. Stefnt á að birta styrkleikalista í Skeet, loftriffli, loftskammbyssu, 50m prone, sporting og H-Class. Samþykkt
- Námskeið.
- Jórunn fór yfir námskeið með Anne Grete í riffilgreinum. Jórunn er í sambandi við þjálfara í riffillgreinum (ISSF) hjá félögunum bæði hvað varðar þjálfarahluta og svo keppendahluta. Þetta er í vinnslu og nánari fréttir koma fljótlega af þessu verkefni
- Það gengur vel á afreksmótunarverkefni í Skeet. Stefnt er á tvö önnur námskeið á þessu ári með Peeter Pakk
- Bréf til ráðuneytis.
- Vinna fer af stað í að senda bréf til ráðuneytis í samræmi við ályktun skotþingsins. Lögð áhersla á atriði er varða lækkun aldursmarka, að miðað sé við fæðingarár, útgáfa C leyfa fleira. Ritara falið að skrifa uppkast að bréfi til að birta fyrir stjórn.
- Önnur mál
- Rætt um frábæran árangur þar sem Jóhann Frank sigraði mótið. Um er að ræða sterkt opið mót með 70 keppendum frá mörgum löndum.
- Farið yfir Íslandsmeistaramótið í loftgreinum sem verður um helgina. Mótshaldari hefur ákveðið að það verður ekki final, vegna tæknilegra örðuleika með kerfið.
- Farið yfir starfsskýrsluskil. Flest búin að skila en nokkur fengið frest til að skila.
- Magnús fer í að undirbúa kennsluefni um starfsskýrsluskil og abler kerfið.
- Magnús sótt um non-profit aðgang að microsoft bussiness og var verið að samþykkja umsóknina í dag. Á eftir að skoða hvað er í samningnum en mun nýtast vel hjá félaginu.
- Í boði er styrkur frá Olympic solitarity og er stefnt á að sækja um. Skilyrði er að íþróttamaður sem sótt er um fyrir er í ólympískri grein. Afreksstjóri skoðar verkefnið með það í huga að sækja um fyrir Hákon en hann er sá eini sem uppfyllir þau skilyrði. Samþykkt.