Mætt eru: Halldór Axelsson, Sigurður Ingi Jónsson, Magnús Ragnarsson, Guðmundur Kr. Gíslason, Ómar Örn Jónsson, Heiða Lára

 

Dagskrá:

 

  1. Verkefni framundan, námskeið og mót.
    1. Halldór fór yfir námskeið og afreksmótunarátak, en STÍ fekk úthlutunn til þessara verkefna. Styrkur 1,7 miljónir sem eru eyrnamerkt þessu verkefni. Afreksmótun. Þetta er ætlað fyrir ungmenni undir 21 árs sem hafa náð mjög góðum árangri í íþróttinni. STÍ hefur fengið undanþágu frá efri aldursmörkum og getur þessu styrkur nýst fyrir þá sem eru aðeins eldri líka. Hugmynd er að nýta þetta í námskeið fyrir þennan hóp.
    2. Verkefni eru í gangi í riffillgreinum
    3. Smáþjóðaleikar og Norðurlandamót í sporting. Magnús Ragnarsson verður fararstjóri. Tveir karla og tvær konur í loftskammbyssu og tvær konur í loftriffli á smáþjóðaleikunum. 25.05.25 – 1.6.2025.
      Norðurlandamót í sporting verður haldið líka í vor. STÍ hefur sett reglur um stuðning við íþróttafólk sem fer erlendis að keppa og greiðir STÍ mótagjöld fyrir 3 efstu sem ná árangri. Búið  er að kanna áhuga með þetta mót og er verið að skoða með þær skráningar. Ísland á 15 pláss en ekki víst að náist að fylla það, eins og í unglingaflokki. Ómar Örn Jónsson fer sem fararstjóri á það mót.
    4. Það er evrópumót, heimsmeistaramót og Lonodo. Erum með öfluga íþróttamenn sem þarf að undirbúa vel.
    5. Halldór hefur verið í sambandi við Önnu Margret Jeppesen þjálfara í riffilgreinum og er verið að vinna í að koma á vinnustofu í riffilskotgreinum með henni. Lagt er til að Jórunn taki þetta verkefni/námskeið að sér að skipuleggja það. Það samþykkt. Þetta er um loftriffill, þrístöðu og prone. Fyrsta vikan í maí kemur til greina eða í haust.
  2. Skotþing.
    1. Undirbúningur í gangu
  3. Önnur mál.
    1. C leyfi hefur verið opnað. LRH sendi póst á skotfélög um að þeir ætluðu að fara að gefa út C-skotvopnaleyfi. Stjórn fagnar því.