Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar. Haldinn á Teams kl. 12:00
Mættir: Halldór Axelsson, Jórunn Harðardóttir, Guðmundur Kr. Gíslason.
1. Ný stjórn skiptir með sér störfum, samþykkt með öllum atkvæðum og skilaboðum frá Magnúsi að hann taki áfram að sér ritarastörf að stjórnskipan verði óbreytt.
2. Jórunn segir frá námskeiðshaldi í riffillgreinum með Anne Grethe Jeppesen sem er í
undirbúningi og verður kynnt betur síðar.
3. Rætt um mótahald helgarinnar og þá keppendur sem eru að keppa erlendis
á næstu dögum. Einnig um vandamál með leyfisveitingar vegna keppna í Svíþjóð.
4. Smáþjóðaleikar ræddir, sérstaklega það vandamál að dagskrá liggur ekki fyrir.
ákveðið að fjalla betur um leikana á næsta fundi.
5. Undir önnur mál fjallað stöðu þjálfunar og mótahald.