Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði á 3 mótum um helgina. Hann varð Íslandsmeistari í Sportskammbyssu og Grófri skammbyssu en að auki sigraði hann á Landsmóti STÍ í Loftskammbyssu. Eins var keppt í Loftriffli og sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR þá grein. Jón Þór er nú þekktari fyrir árangur sinn í riffilkeppnunum 50m og 300m á alþjóðlegum vettvangi en skammbyssan liggur greinilega vel fyrir honum líka. Nánar má skoða úrslit helgarinnar á úrslitasíðu STÍ.
Jón Þór sigraði á 3 skammbyssumótum um helgina
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2025-04-14T09:25:52+00:00April 14th, 2025|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór sigraði á 3 skammbyssumótum um helgina