Jóhann Ævarsson úr SA sigraði á Landsmóti STÍ í haglabyssugreininni Compak Sporting um helgina með 186 stig. Jón Valgeirsson úr SR varð annar með 184 stig og í þriðja sæti hafnaði Wimol Sudee úr SA með 175 stig. Keppt var í þrjá daga með nýju fyrirkomulagi þannig að á föstudeginum voru skotnir 2 hringir á Húsavík, 4 hringir á laugardegi á Akureyri og loks 2 hringir á Ólafsfirði á sunnudaginn. Nánari úrslit á úrslitasíðunni.
Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2023-06-19T10:51:33+00:00June 19th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina