Fyrsta Landsmót sumarsins í haglabyssugreininni skeet fór fram á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar um helgina. Gunnar Gunnarsson úr SFS sigraði með 109/45 eftir bráðabana við Pétur Gunnarsson sem varð annar með 114/49 og tryggðu þeir sér þar með farseðilinn á smáþjóðaleikana á Möltu í lok þessa mánaðar. Þriðji varð svo Daníel Logi Heiðarsson úr SÍH með 105/37. Nánar á úrslitasíðunni.
Landsmót í Skeet um helgina
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2023-05-02T18:06:04+00:00May 2nd, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Skeet um helgina