Fundur haldinn á Teams kl. 12:00
Mættir eru: Halldór, Guðmundur, Valur, Ómar Örn og Magnús
Dagskrá:
  1. Yfirferð yfir nýliðin verkefni og þau sem eru framundan.
    1. Starfsleyfi komið fyrir Álfsnes sem er fagnaðarefni fyrir SR
    2. Mjög góður árangur hjá landsliði í haglagreinum á Evrópumeistaramóti. Arnór með glæsilegan árángur og náðu Arnór og Hákon að ná lágmörkum til alþjólegrar keppni aftur sem eru 118 dúfur í skeet. Arnór auðvitað náði kvótaplássi á Evrópuleikunum með 121 dúfu.
    3. Jón Þór skaut 597 og hafnaði í 8. sæti á lokamóti í Lapua mótaröðinni i 300m riffli.
    4. Skráning á verkefni Iceland Leap Junior 2026-28 sem Anne Grete heldur, hefur fengið viðbrögðu framar vonum en 9 aðildarfélög hafa skráð þáttakendur í verkefnið og þáttakendur nálægt 20 sem stjórn er mjög ánægð með. Verkefnið byrjar næstkomandi helgi, 17.-18. oktober.
    5. Mótaskráin var komin út og á vefinn. Um er að ræða mótaskrá kúlugreina í ISSF greinum, en haglagreinar eru eftir og benchrestgreinar.
    6. Úrslit frá heimsmeistaramótinu í WBSF í randkveiktu eru komin. Aðstæður voru erfiðar en Davíð hafnaði í 55. sæti en aðrir þar rétt á eftir. Íslenska liðið hafnaði í 13.  sæti í liðakeppni sem er stórgóður árangur. Úrslit í einstaklingskeppni er hér og öll úrslit hér.
  2. Umræða og skoðanir stjórnar á framhaldi verkefna og stuðning.
    1. Unnið var í að sækja um styrki til ÍSÍ vegna launastyrkja. Aðeins er hægt að sækja um styki til ÍSÍ vegna greina sem ÍSÍ samþykkir. Þeir sem hægt er að sækja um fyrir eru Hákon þór, Arnór Logi og Jón Þór .
    2. Farið var yfir styrkjamál vegna verkefna, annarsvegar app sem einstaklingur er að vinna við í þágu skotíþrótta. Rætt um að bæði gagnagrunn STÍ og svo þetta verkefni. Farið yfir forgangsröðun. Miklar umræður um hvernig þessum málum skuli háttað. Ekki teknar ákvarðanir á fundinum varðandi styrkina en vanda þarf til verka og ákveða reglur er varða styrki til einstakra verkefna til að tryggja jafnræði og gangsæi í þeim efnum.
    3. Rætt um gagnagrunninn og framvindu hans. Magnús fór yfir það en verkefnið hefur dregist, m.a. vegna tímasskorts, en er að byrja aftur. Magni Þór Mortenssen er einnig kominn að verkefninu vegan mikillar þekkingar hans á frammendum og vinna hafin við þann hluta.
    4. Sótt var um styrk til Rannís vegna verkefnis Youth Leap sem Anne Grete heldur.
  3. Önnur mál.
    1. Magnús fer yfir sjálfvirkar skráningu af heimasíðu yfir á Instagram og Facebook síðu STÍ. Þetta tryggir að fréttir birtist sjálfkrafa á miðlum og var þetta tekið upp eftir ábendingu aðildarfélags. STÍ bendir þó á að birting frétta og mynda af mótum og viðburðum er háð því að fatareglugerð sé virt og ef myndir af verðlaunaafhendingum uppfylli ekki skilyrði reglugerðar verða þær fréttir ekki birtar á heimasíðu STÍ. Fatareglur STÍ gilda um allar greinar sem stundaðar eru undir STÍ og er meginreglan “Í klæðnaði sem hæfir opinberum viðburði og íþróttamóti og gefur til kynna að um íþróttaviðburð sé að ræða.“
    2. Farið yfir mótahald og umgjörð um skráningar og þekkingu mótshaldara á reglum. Rætt um að meiri kynningar er þörf en einnig að reglur bæði alþjóðasambanda og STÍ eru aðgengilegar öllum. Efla þarf þessa þekkingu og bæta umgjörð. Gagnagrunnurinn mun styrkja umgjörðina. Skerpa þarf við félögin hvernig bregðast eigi við ef fresta þarf móti, hvenær fresta má mótum o.s.f.v.
    3. Rætt um formannafund. Ákveða þarf dagssetningu, taka frá sal og bjóða uppá teams hlekk.
    4. Ein tilnefning hefur borist STÍ vegna norræns styrks fyrir ungt íþróttafólk. STÍ mun senda 16. Oktober sína tilnefningu en STÍ getur sent eina umsókn um styrk vegna verkefnisins.