Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams þann 19.06.2026.

Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Ómar Örn Jónsson, Halldór Axelsson og Guðmundur Kr. Gíslason

Dagskrá fundar

  1. Reglugerð vegna skotvopna
    1. Stjórn STÍ hefur haft fregnir af því að reglugerð sé að fara í samráðsgátt fyrir lok mánaðar. Ekkert hefur verið haft samband beint við STÍ frá ráðuneyti.
    2. Ekki verða sendar inn tillögur til ráðuneytis þar til frumvarpið verður birt þannig að viðbrögð STÍ geti tekið mið að því
    3. Stjórn mun reyna að afla upplýsinga um málið, um hver staðan er.
  2. Rætt um erindi sem barst – áframhald frá síðasta fundi
    1. Trúnaðarmál
  3. Rætt um styrkjamál vegna Jóhannes Frank. Einn okkar sterkast skotmaður STÍ  og er vilji til að styrkja hann áfram. Fekk hann styrk upp að 500.000 kr. á móti kostnaði (framlagðir reikningar) vegna heimsmeistaramótsins síðastliðin.
    1. Farið yfir styrkjamál vegna Evrópumótsins og fyrirkomulag á því.
    2. Stjórn STÍ mun vera í samtali við Jóhannes með skipulag og fyrirkomulag og það svo kynnt stjórn.
  4. Einnig rætt áfram um styrkjamál og stefnu í þeim málum
    1. Mikilvægt að marka stefnu í þessum efnum, sérstaklega greinum þar sem ÍSÍ styrkir ekki. Tekjur STÍ utan ÍSÍ eru aðallega af keppnisgjöldum og þarf að taka mið af þeim tekjum sem STÍ hefur í þeirri vinnu
  5. Rætt um lyfjamál.
    1. Lyfjaeftirlit hefur ekki verið mjög virkt inna skotgreina uppá síðkastið. Rætt um hvort þurfi að ræða við lyfjaeftirlitið hverju sætir.
    2. Samkvæmt reglum STÍ falla allir iðkendur innan STÍ undir lyfjaeftirlit og þá jafnframt að mati stjórnar líka greinar sem ekki eru innan WADA (Alþjóða lyfjaeftirlitið). ÍSÍ gerir kröfur til þess að allar greinar innan ÍSÍ falli undir WADA.
    3. Rætt um að það þarf að auka fræðslu til keppanda um lyfjamál. Rætt um að birta hlekki á námskeið á heimasíðu og Facebook síðuna.
  6. Verkefnin framundan
    1. Nokkur stór mót framundan. Jón Þór er að keppa á Lapua Grand Prix um helgina. Mót í Skeet og Miðkveiktu BR verða haldin um helgina
    2. Hákon er að fara að keppa í Kína á world cup, 20. – 29. júlí
    3. Það gengur vel að undirbúa norðurlandamót sem verður haldið í Eistlandi, 3. – 9. í ágúst. Verður sent eitt karlalið í skeet. Hákon, Jakob og Arnór verða fulltrúar Íslands þar.
    4. Lady Grand Prix verður haldið 15. – 19. júlí.
  7. Önnur mál
    1. Fyrirspurn um 300m Íslandsmót. Ekki komið á mótaskrá. Mótanefnd faldið að kanna með það mót.
    2. Rætt um stuðning frá STÍ vegna Lady Grand Prix, bæði í vinnu, aðstoð og fjárhagslega. Dagný Hinriksdóttir hefur borið hitan og þungan af skipulagningu á þessu móti.
    3. Vegna mögulegar aðildarumsóknar Íslands að ESB þarf að fara yfir umhverfið vegna skotíþrótta. Stjórn mun yfir þessi mál og taka fyrir á næstu fundum.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 13:05