Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams kl. 12:00

Mættir eru: Valur Richter, Magnús Ragnarsson, Jórunn Harðardóttir, Ómar Örn Jónsson, Guðmundur Kr. Gíslason og Halldór Axelsson

Dagskrá:
  1. Erindi tekið fyrir – Trúnaðarmál.
  2. Mótahald innanlands.
    1. Búin að vera 3 skeet á árinu. Fyrsta mótið fellt niður vegna fámennis. Annað mót haldið á einum degi, og næsta mót verði á einum degi líka. Þetta fer gegn reglum um mótahald og ekki í samræmi við alþjóðareglur. Það veikir niðurstöður mótanna. STÍ lýsir yfir áhyggjum af þessari þróun. Mögulega breyta reglum hvað þetta varðar. Hugmyndir viðraðar um að fækka landsmótum og skilyrða þau við tveggja daga. Þessi mál verða skoðuð og rædd frekar á síðari stigum.
    2. Óskað eftir því að bæta Íslandsmeistaramóti í BR50, haldið af Skotíþróttafélagi Kópavogs, á svæði Skotíþróttafélagi Suðurlands í Þorlákshöfn 25. -26. júlí. Skaust bauðst líka til að halda mót en undirbúningur var lengra kominn með fyrrnefnt mót.
      1. Stjórn samþykkir að þetta sé sett inn á mótaskrá.
  3. Önnur mál.
    1. Styrkjamál rædd vegna íþróttamanna hérlendis
      1. Rætt um hvort setja eigi reglur um stykjamál eða það verði áfram stjórnarákvörðun – verður rætt frekar áfram.
      2. Rætt hvort stofna ætti sérstakan styrktarsjóð fyrir afreksíþróttamenn í öllum greinum STÍ
    2. Kærugjald STÍ ákveðið. 5.000 kr. – en það er þá eitt gjald fyrir öll sambönd. Þetta er gert til að einfalda mótahald hér heima og verður að leggja fram 5.000 kr. þegar kært er og verður það endurgreitt ef kærandi vinnur málið. 10.000 kr. áfrýjunargjald í ISSF greinum.
      1. Samþykkt
    3. Farið yfir umsókn um styrk vegna nýs apps fyrir þjálfun í loftskammbyssu.
      1. Lagt til að funda með umsækjanda vegna umsóknar en stjórn tekur mjög jákvætt í umsóknina.
    4. Rætt um reglugerðamál, ekkert komið enn þá frá þeim. Stjórn leggur til tillögur í frumvarp fyrir næsta fund.

Fundi slitið kl. 13:00