Stjórnarfundur STÍ haldin á Teams 22.05.2026 kl. 12:00
Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Ómar Örn Jónsson, Guðmundur Kr. Gíslason
Dagsskrá fundar:
- Stjórn skiptir með sér verkum
- Stjórnarskipina óbreytt – samþykkt samhljóða.
- Guðmundur Kr. Gíslason – Ritari
- Jórunn Harðardóttir – Varaformaður
- Magnús Ragnarsson – Ritari
- Ómar Örn Jónsson – Meðstjórnandi
- Valur Richter – Varamaður
- Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir – Varamaður.
- Halldór Axelsson – Formaður
- Stjórnarskipina óbreytt – samþykkt samhljóða.
- Verkefnin framundan
- Farið yfir reglugerðamálið. Engin svör hafa borist þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Umræður um næstu skref.
- Rætt um verkefni framundan í þjálfun og uppbyggingu sem verður í boði fyrir íþróttafólk innan STÍ í hinun ýmsu greinum.
- Rætt um verkefni í riffli og þar er rætt um aðila til að taka við af Anne Grete, þar sem hún nær ekki að sinna þessu næstu verkefni.
- Önnur mál
- STÍ vekur athygli á sumar þjálfaranámi ÍSÍ sem verður núna í sumar og hvetur félögin til að auglýsa þetta innan sinna félaga og hvetja þá sem koma að þjálfun eða vilja koma að uppbyggingu hjá sínum félögum.
- Skaust hefur verið í sambandi við STÍ vegna vinnu við að byggja upp unglingastarf hjá sér og fá upplýsingar um það.
- Einnig nefndi Skaust að þeir hefðu áhuga á að halda Íslandsmeistaramóti í BR50 og ætluðu að senda inn beiðni þess efnis á STÍ.
- Skotíþróttafélag Hornafjarðar hefur einnig verið í sambandi við STÍ vegna uppbyggingu á unglinga og barnastarfi.
- Áhyggjur viðraðar um slaka mætingu á haglamót sem af er tímabili. Rætt um hvort að fyrirkomulag móta sé um að kenna eða aðrar skýringar. Fylgst verður með mótahaldi og það skoðað í haust. Innanfélagsmót eru með mun fleiri iðkendur en landsmótin.
- Ósk um styrk vegna þjalfaraapp fyrir loftgreinar. Stjórn tekur mjög vel í þetta og mun fara yfir málin fram að næsta fundi þar sem tekin verður ákvörðun.
Ekki fleira á fundi og fundi slitið kl 13:00