Stjórnarfundur STÍ haldin á Teams 22.05.2026 kl. 12:00

Mættir eru: Magnús Ragnarsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Ómar Örn Jónsson, Guðmundur Kr. Gíslason

 

Dagsskrá fundar:

  1. Stjórn skiptir með sér verkum
    1. Stjórnarskipina óbreytt – samþykkt samhljóða.
      1. Guðmundur Kr. Gíslason – Ritari
      2. Jórunn Harðardóttir – Varaformaður
      3. Magnús Ragnarsson – Ritari
      4. Ómar Örn Jónsson – Meðstjórnandi
      5. Valur Richter – Varamaður
      6. Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir – Varamaður.
      7. Halldór Axelsson – Formaður
  2. Verkefnin framundan
    1. Farið yfir reglugerðamálið. Engin svör hafa borist þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Umræður um næstu skref.
    2. Rætt um verkefni framundan í þjálfun og uppbyggingu sem verður í boði fyrir íþróttafólk innan STÍ í hinun ýmsu greinum.
      1. Rætt um verkefni í riffli og þar er rætt um aðila til að taka við af Anne Grete, þar sem hún nær ekki að sinna þessu næstu verkefni.
  3. Önnur mál
    1. STÍ vekur athygli á sumar þjálfaranámi ÍSÍ sem verður núna í sumar og hvetur félögin til að auglýsa þetta innan sinna félaga og hvetja þá sem koma að þjálfun eða vilja koma að uppbyggingu hjá sínum félögum.
    2. Skaust hefur verið í sambandi við STÍ vegna vinnu við að byggja upp unglingastarf hjá sér og fá upplýsingar um það.
      1. Einnig nefndi Skaust að þeir hefðu áhuga á að halda Íslandsmeistaramóti í BR50 og ætluðu að senda inn beiðni þess efnis á STÍ.
    3. Skotíþróttafélag Hornafjarðar hefur einnig verið í sambandi við STÍ vegna uppbyggingu á unglinga og barnastarfi.
    4. Áhyggjur viðraðar um slaka mætingu á haglamót sem af er tímabili. Rætt um hvort að fyrirkomulag móta sé um að kenna eða aðrar skýringar. Fylgst verður með mótahaldi og það skoðað í haust. Innanfélagsmót eru með mun fleiri iðkendur en landsmótin.
    5. Ósk um styrk vegna þjalfaraapp fyrir loftgreinar. Stjórn tekur mjög vel í þetta og mun fara yfir málin fram að næsta fundi þar sem tekin verður ákvörðun.

Ekki fleira á fundi og fundi slitið kl 13:00