Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams 20.03.2026 kl. 12:00

Mættir eru: Halldór Axelsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Magnús Ragnarsson, Heiða Lára og Guðmundur Kr. Gísla.

  1. Bréf til ráðuneytis, afgreiðsla
    1. Lokadrög tilbúin. Verður bæði birt beint fyrir ráðherra, og afrit sent á ÍSÍ og verður sent í dag.
    2. Jórunn með breyting á orðalagi, samþykkt
    3. Framkvæmdastjóra falið að setja í bréfsefni og senda.
  2. Uppl. um framhald verkefna í riffil greinum.
    1. Breytingar á verkefnu í riffilgreinum. Anne Grete forfallast vegna persónulegra aðstæðna. Stefan Olsen mun leysa hana af á meðan og er búið að vera í sambandi hann með framhald á verkefninu í riffilgreinum.
    2. Stefan mun þá koma að verkefnum tengdum Jóni Þóri.
    3. Stjórn samþykkir að hann komi inn í þessi verkefni.
    4. Fyrirspurn varðandi þjálfararéttindi, en Stefan ekki með þau réttindi sem þarf til að fá að vera á “field of play” á stórmótum. STÍ getur sótt um undanþágu fyrir hann til ISSF, hann yrði þá skilgreindur sem landsliðsþjálfari í prone fyrir STÍ til að það sé gerlegt.
      1. Til að mega vera þjálfari á stórmótum er skilyrði að vera með þjálfararéttindi frá ISSF, B réttindi, til að mega fylgja íþróttamanni inn á keppnissvæði.
  3. Verkefni STÍ í haglagreinum 2026.
    1. Póstur verður sendur á öll aðildarfélaga um námskeið og vinnustofu í haglagreinum og verður kynnt í póstinum. Ætlað félögum og þjálfurum félaga. Verður laugardaginn 18. apríl og verður kostnaður 5.000 kr. á þáttakanda. Aðildarfélög skrá á námskeiðið.
  4. Önnur mál.
    1. Halldór óskar eftir leyfi stjórnar um að sækja um leyfi til að fá að vera með  ISSF til að fá að vera á keppnissvæði í haglagreinum uppá ef þarf á því að halda á stærri mótum.. Stjórn samþykkir það.
    2. Upplýsingar voru að berast STÍ frá ÍSÍ með stöðu á skilum. STÍ ítrekar við aðildarfélög að skila þarf inn skýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl næstkomandi. Félög sem ekki skila inn geta verði sett í keppnisbann og því mikilvægt að þau skila á réttum tíma.