Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams 20.03.2026 kl. 12:00
Mættir eru: Halldór Axelsson, Jórunn Harðardóttir, Valur Richter, Magnús Ragnarsson, Heiða Lára og Guðmundur Kr. Gísla.
- Bréf til ráðuneytis, afgreiðsla
- Lokadrög tilbúin. Verður bæði birt beint fyrir ráðherra, og afrit sent á ÍSÍ og verður sent í dag.
- Jórunn með breyting á orðalagi, samþykkt
- Framkvæmdastjóra falið að setja í bréfsefni og senda.
- Uppl. um framhald verkefna í riffil greinum.
- Breytingar á verkefnu í riffilgreinum. Anne Grete forfallast vegna persónulegra aðstæðna. Stefan Olsen mun leysa hana af á meðan og er búið að vera í sambandi hann með framhald á verkefninu í riffilgreinum.
- Stefan mun þá koma að verkefnum tengdum Jóni Þóri.
- Stjórn samþykkir að hann komi inn í þessi verkefni.
- Fyrirspurn varðandi þjálfararéttindi, en Stefan ekki með þau réttindi sem þarf til að fá að vera á “field of play” á stórmótum. STÍ getur sótt um undanþágu fyrir hann til ISSF, hann yrði þá skilgreindur sem landsliðsþjálfari í prone fyrir STÍ til að það sé gerlegt.
- Til að mega vera þjálfari á stórmótum er skilyrði að vera með þjálfararéttindi frá ISSF, B réttindi, til að mega fylgja íþróttamanni inn á keppnissvæði.
- Verkefni STÍ í haglagreinum 2026.
- Póstur verður sendur á öll aðildarfélaga um námskeið og vinnustofu í haglagreinum og verður kynnt í póstinum. Ætlað félögum og þjálfurum félaga. Verður laugardaginn 18. apríl og verður kostnaður 5.000 kr. á þáttakanda. Aðildarfélög skrá á námskeiðið.
- Önnur mál.
- Halldór óskar eftir leyfi stjórnar um að sækja um leyfi til að fá að vera með ISSF til að fá að vera á keppnissvæði í haglagreinum uppá ef þarf á því að halda á stærri mótum.. Stjórn samþykkir það.
- Upplýsingar voru að berast STÍ frá ÍSÍ með stöðu á skilum. STÍ ítrekar við aðildarfélög að skila þarf inn skýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl næstkomandi. Félög sem ekki skila inn geta verði sett í keppnisbann og því mikilvægt að þau skila á réttum tíma.