Stjórnarfundur STÍ haldinn á teams kl. 12:00 13.03.2026

Mættir eru: Halldór, Jórunn, Ómar, Guðmundur, Valur og Heiða

Fundardagsskrá:

  1. Bréf til ráðuneytis.
    1. Drög að bréfi til ráðuneytis borið undir stjórn og samþykkt með nokkrum breytingum, þar sem áhersla er lögð á að kynna STÍ og stöðu þess betur.
  2. Lög fyrir þing.
    1. Vinnuskjal komið og er í vinnslu. Áhersla á breytingartillögur sem komið hafa frá aðildarfélögum og eins breytingar frá ÍSÍ vegna breyttra laga þeirra.
  3. Fyrirlestur og námskeið í haglagreinum. Það verður haldið af Peeter Piakk laugardaginn 18.apríl í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Efni þess verður kynnt nánar þega nær dregur sem og þátttökugjaldið.
  4. Önnur mál. Mótaskrá haglagreina er að klárast og verður mótanefnd komin með lokaplan innan fárra dag.

Fundi slitið kl.13:00