Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams 6. mars kl. 12:00

Mættir eru:

Dagsskrá fundar:

  1. Bréf til ráðuneytis
    1. Stjórn barst svar við ítrekuðu erindi til Dómsmálaráðuneytis dagssett 5. september 2025. Óskað hafði verið eftir fundi og ítrekun send nokkrum sinnum.
      1. Tölvupóstur til DMR 06.09.2025
      2. Í svari ráðuneytis var erindinu ekki svarað beint heldur STÍ boðið að koma athugasemdum um nýja reglugerð fram í gegnum samráðsgátt þegar hún kæmi út þar. Stjórn telur svar ráðuneytis ekki vera fullnægjandi.
      3. Bréfinu verður svarað og ósk um fund með ráðuneytinu ítrekað, en áður hafði STÍ fengið fullvissu frá ráðuneytinu um að það væri haft með í þeirri vinnu sem myndi leiða m.a. til reglugerðabreytinga, en ekki hefur verið staðið við það og ekki hefur komið boð til STÍ né erindum svarað sem send hafa verið á ráðuneytið.
      4. STÍ átti fundi með DMR 15. mars 2023 þar sem lofað var að hafa STÍ með í þeirri vinnu sem framundan. 22. mars 2024 var óskað eftir fundi í framhaldi þess fundar. Ekki hefur komið frá DMR eftir það.
  2. Lagabreytingar fyrir þing.
    1. ÍSÍ hefur sent STÍ með leiðbeingum um lagabreytinum.
    2. Lagt til að ábendingar frá USAH og ÍSÍ verða nýttar til lagabreytinga á þessu þingi, en svo verði haldið áfram að vinna í að bæta lögin. Það samþykkt
  3. NSR Fundur
    1. NSR fundurinn kominn aftur á borðið. Ekkert heyrst frá þeim fyrr en núna.
    2. Von á svörum í dag. Fyrirvarinn er orðinn stuttur. Formaður mun upplýsa stjórn þegar frekari upplýsingar koma en lagt er til að fresta fundinum eða fella niður, þar sem til stóð að þetta yrði í haldið í mars. Ekki er mikil þáttaka eins og er.
  4. Önnur mál
    1. Mótaskrá í haglagreinum verður að koma út núna. Verið er að leysa ákveðin mál
      1. Vonast til að hún komi eftir fund mótanefnar í næstu viku.
    2. Bretland er búið að staðfesta blýbann hjá sér. Það er 3 ára aðlögunartími. Á ekki við loftgreinar og .22LR. Rætt um þessi mál. ESB hefur frestað þessum aðgerðum um þessi mál.

Ekkert meira á fundi og fundi slitið 12:50