Stjórnarfundur STÍ haldinn á Teams 6. mars kl. 12:00
Mættir eru:
Dagsskrá fundar:
- Bréf til ráðuneytis
- Stjórn barst svar við ítrekuðu erindi til Dómsmálaráðuneytis dagssett 5. september 2025. Óskað hafði verið eftir fundi og ítrekun send nokkrum sinnum.
- Tölvupóstur til DMR 06.09.2025
- Í svari ráðuneytis var erindinu ekki svarað beint heldur STÍ boðið að koma athugasemdum um nýja reglugerð fram í gegnum samráðsgátt þegar hún kæmi út þar. Stjórn telur svar ráðuneytis ekki vera fullnægjandi.
- Bréfinu verður svarað og ósk um fund með ráðuneytinu ítrekað, en áður hafði STÍ fengið fullvissu frá ráðuneytinu um að það væri haft með í þeirri vinnu sem myndi leiða m.a. til reglugerðabreytinga, en ekki hefur verið staðið við það og ekki hefur komið boð til STÍ né erindum svarað sem send hafa verið á ráðuneytið.
- STÍ átti fundi með DMR 15. mars 2023 þar sem lofað var að hafa STÍ með í þeirri vinnu sem framundan. 22. mars 2024 var óskað eftir fundi í framhaldi þess fundar. Ekki hefur komið frá DMR eftir það.
- Stjórn barst svar við ítrekuðu erindi til Dómsmálaráðuneytis dagssett 5. september 2025. Óskað hafði verið eftir fundi og ítrekun send nokkrum sinnum.
- Lagabreytingar fyrir þing.
- ÍSÍ hefur sent STÍ með leiðbeingum um lagabreytinum.
- Lagt til að ábendingar frá USAH og ÍSÍ verða nýttar til lagabreytinga á þessu þingi, en svo verði haldið áfram að vinna í að bæta lögin. Það samþykkt
- NSR Fundur
- NSR fundurinn kominn aftur á borðið. Ekkert heyrst frá þeim fyrr en núna.
- Von á svörum í dag. Fyrirvarinn er orðinn stuttur. Formaður mun upplýsa stjórn þegar frekari upplýsingar koma en lagt er til að fresta fundinum eða fella niður, þar sem til stóð að þetta yrði í haldið í mars. Ekki er mikil þáttaka eins og er.
- Önnur mál
- Mótaskrá í haglagreinum verður að koma út núna. Verið er að leysa ákveðin mál
- Vonast til að hún komi eftir fund mótanefnar í næstu viku.
- Bretland er búið að staðfesta blýbann hjá sér. Það er 3 ára aðlögunartími. Á ekki við loftgreinar og .22LR. Rætt um þessi mál. ESB hefur frestað þessum aðgerðum um þessi mál.
- Mótaskrá í haglagreinum verður að koma út núna. Verið er að leysa ákveðin mál
Ekkert meira á fundi og fundi slitið 12:50