Stjórnarfundur STÍ haldin á teams kl. 12:00

Mættir eru.

Fundardagsskrá

  1. Lagabreytingar
    1. Tillögur að lagabreytingum komu frá USAH, þær tillögur verða nýttar við vinnuna en þær eru mjög vel fram settar.
    2. Stefnt á að skila drögum að lagabreytingum til ÍSÍ í næstu viku til yfirlestrar.
    3. Framkvæmdastjóri, formaður og ritari leggja fram drög að breytingum fyrir stjórn áður en þær verða sendar á ÍSÍ. Samþykkt
  2. Mótaskrá haglagreina
    1. Markviss leggur fram tillögu um tvö 100 dúfu mót í NT inn á mótaskrá. Markviss leggur til að 100 dúfu mót verði notuð til viðmiða á ranklistum eins og skotsamböndin á norðurlöndum gera.
      1. Stjórn sér ekkert því til fyrirstöðu og tekur vel í það fyrirkomulag. Sett í hendur mótanefndar að útfæra mótaskrá með tillögum að 100 dúfu mótum. Samþykkt.
    2. Árekstur er á Íslandsmeistaramótinu í Skeet á móti norðurlandamóti í haglagreinum sem haldið er á sama tíma.
      1. Formaður fer í að skoða þetta til að hægt sé að koma út mótaskránni.
  3. Önnur mál
    1. Vinna við ranklista, hefur verið gert í fáum greinum og stefnt að fjölga þeim.
    2. Samtal við ráðuneyti í vinnslu varðandi reglugerðavinnu.

Ekki fleira gert og fundi slitið 12:50