Stjórnarfundur STÍ haldið á teams kl. 12:oo
Mættir eru: Halldór Axelsson, Guðmundur Kr. Gíslason, Valur Richter, Heiða Lára, Jórunn Harðardóttir, Magnús Ragnarsson og Ómar Örn Jónsson
Fundardagsskrá:
- Skotþing STÍ
- Laugardagur 24. apríl dagssetning sem lögð er til
- Þingið myndi byrja kl. 12 vegna Íslandsmóts í 50m liggjandi riffli.
- Farið yfir þingmál, fundarstjórn og annað
- Tillögur að lagabreytingum ræddar
- Önnur mál
- STÍ hélt RIG síðustu helgi. Gerð tilraun með að streyma frá mótinu. Mikil ánægja að það og rætt hvort að STÍ eigi að fjárfesta í grunnbúnaði til að getað vera með streymi frá stærri mótum eins og Íslandsmótum. Verður rætt við Magna og Sigurð Inga um að skoða búnað og fá verð í það.
- Magnús leggur til við stjórn að skoðað verði að finna fjölmiðlafulltrúa fyrir STÍ sem myndi leggja áherslu á að búa til efni og auglýsa á öllum miðlum, m.a. tiktok, instagram, snapcat og miðlum sem ná til yngri hóps og jafnramt almennar fréttir. Tekið vel í það og verður kannað með það.
- Smáþjóðaleikar verða í lok maí 2027 ( Mónakó). Nú er bara keppt í loftgreinum og eru 8 sæti í boði. 2 kvenn og 2 karla í hvorri grein (Loftriffill og Loftskammbyssu). Ekkert lágmark, en verður farið eftir árangri í þeim greinum þegar verður valið á mótið og verður það auglýst betur síðar.
- Norðurlandamót verður í sumar í Eistlandi 3. – 9. ágsúst 2026. Þar verður keppt í haglagreinum í fullorðinsflokki og unglingaflokki og svo bara í unglingaflokki í kúlugreinum, en ekki eru komnar upplýsngar um nákvæmlega í hvaða greinum. Norðurlandamót er sterkt mót og verða því lágmörk í þessum greinum, en farið verður eftir árangri líka. Mögulega verða sett sértök lámörk gagnvart Norðurlandamóti. Það verður parakeppni og er sterkt að getað sent lið í parakeppni í þeim greinum sem verða í því ef það er kostur.
- Magnús spyr út í mótaskrá í haglagreinum og hvað væri að frétta í þeim efnum. Ekki var búið að senda út drög á félögin. Var árekstur sem var ekki búið að leysa. Stjórn ítrekar að drög verði send til umsagnar á félögin sem fyrst.
- Farið yfir HM í Portugal. Listin klár og verður sendur eins og hann stendur og verður send út forskráning fyrir 6 manns. Lagt til að Davíð Bragi Gígja verði hópstjóri og tengiliður vegna HM í Portúgal. Það samþykkt
- Mótaskrá í BR greinum að verða klár. Það vantar þó inn nokkur mót miðað við síðustu ár og verður kannað með að fjölga en drög að mótaskrá verður send út í vikunni.
- Ekki allt ljóst með Norðurlandafund, ekki verið staðfest ennþá.
Ekki fleira á fundi og fundi slitið 13:00