Í dag fór fram landsmót Skotíþróttasambands Íslands í þrístöðu í Egilshöll. Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur átti frábæran dag og setti sitt annað Íslandsmet um helgina — skaut 520 stig og bætti eigið unglingamet um tvö stig. Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar vann opna flokkinn örugglega á persónulegu meti, 541 stigum. Í öðru sæti lenti félagi hans, Leifur Bremnes, með 524 stig og þriðja sætið hlaut Jórunn Harðardóttir úr SR með 521 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ….
Úlfar setti sitt annað Íslandsmet um helgina
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-03-29T15:57:01+00:00March 29th, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Úlfar setti sitt annað Íslandsmet um helgina