Ársþing STÍ verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 25.apríl n.k. og hefst það kl.11:00.
Þingboð hefur þegar verið sent á öll aðildarfélög, héraðssambönd og íþróttabandalög. Athugið að kjörbréfin þurfa að berast í síðasta lagi 17.apríl á sti@sti.is Skv. 12.grein laga STÍ, þurfa málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu að berast stjórn STÍ 3 vikum fyrir þing. Sama gildir um framboð til stjórnar en að þessu sinni er kosið um tvö sæti í aðalstjórn og eitt sæti í varastjórn, til tveggja ára. Áfram sitja formaður, tveir í aðalstjórn og einn í varastjórn til eins árs.