Í dag fór fram Íslandsmeistaramótið í Grófri skammbyssu. Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs fór með sigur af hólmi – með 560 stig, Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur varð annar með 539 stig en Björgvin Sigurðsson úr Skotdeild Keflavíkur þriðji með 522 stig.
Í liðakeppni varð lið SFK í fyrsta sæti með 1505 stig, lið SR í öðru með 1502 stig, en lið SK í þriðja með 1360 stig. Í liði SFK voru auk Jóns þeir Friðrik Goethe og Guðmundur Tryggvi Ólafsson. Í liði SR varð auk Karls þeir Ármann Guðmundsson og Jón Árni Þórisson, en í liði SK voru auk Björgvins þeir Bjarni Sigurðsson og Theodór Kjartansson. Nánar á úrslitasíðu STÍ.