Íslandsmeistaramótið í Sport skammbyssu var haldið í Digranesi í dag. Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 571 stig, sem er jöfnun á Íslandsmetinu, Friðrik Goethe úr SFK var annar með 551 stig og Karl Kristinsson úr SR þriðji með 534 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit SFK með 1,613 stig, sveit SR varð önnur með 1,526 stig og í þriðja sæti sveit SK með 1,434 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.